FJARÓMUR
Stærð: 56x56 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Handan víkur hvíla fjöllin í fölnandi birtu. Í víðáttunni lifir ómur liðinna stunda, minningar sem berast með vindinum og hverfa inn í eilífð landsins. Þar sem tíminn missir tak sitt og hugurinn fær að reika óáreittur, verður kyrrðin að athvarfi og fjarlægðin að friði."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.