FJARHVÍSL
Stærð: 40x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Í kyrrðinni, þar sem haf og himinn renna saman, hvíslast sögur sem aðeins náttúran kann að segja. Þegar friður fyllir hjartað og ekkert þarfnast orða, aðeins augnabliks til að finna fegurðina í hinu hljóðláta."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.