Eldmóður
Stærð: 70x70 cm.
Tækni: Akrýl og blönduð tækni á striga.
Hringformið er sterkt tákn og einfaldasta formið af mandölu. Orðið mandala táknar kjarna og "ílát" eða það sem heldur utan um kjarnann. Þegar eldmóðurinn vaknar innra með þér, í þínum innsta kjarna og öll gleðin og orkan sem kveikir ljós og neista. Þá finnur þú fyrir ákefð og ástríðu. Þetta verk er málað með þeim ásetningi að orka eldmóðs og ástríðu fylgi því. Megir þú finna og upplifa eldinn innra með þér.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli
Staðsetning listaverks
1. Ef sækja á verk er gott að vita staðsetningu listamanns. Staðsetning listamanns kemur fram undir heiti verks hér fyrir ofan.
2. Setja í körfu
Fyrst þarf að bæta verki í körfu. Í körfunni þarf að haka í og samþykkja skilmála áður en gengið er frá kaupum. Áður en haldið er áfram í afhendingarmáta þarf að fylla inn upplýsingar um viðtakanda.
3. Afhendingarmáti
Í boði er að sækja verkið á vinnustofu listamanns eða að fá verkið sent heim. Ef valið er að sækja hefur listamaður samband og gefur upp nákvæma staðsetningu á vinnustofu.
4. Greiðsluleiðir
Greiðslu getur þú innt af hendi á ýmsa vegu: Kredit- og debetkort, millifærsla í banka, reiðufé eða Netgíró, Aur, Pei til þess að borga/dreifa/fresta greiðslum.
5. Afhending á verki
Þegar greiðsla hefur borist fær listamaður upplýsingar um kaupin. Listamaður hefur samband við kaupanda, við fyrsta tækifæri, og undirbýr verkið fyrir afhendingu.
6. Afhendingartími
Við leggjum metnað í afhendingartíma og því hafa listamenn oftar en ekki samband samdægurs til þess að afhenda verk.
Sjá skilmála fyrir ýtarlegri upplýsingar.

Kristín Berta
Kristín Berta Guðnadóttir er fædd og uppalin í Reykjavík en býr í Hafnarfirði með fjölskyldu sinni. Áhugi hennar á myndlist kviknaði í barnæsku þegar hún sótti hin ýmsu námskeið hjá Myndlistaskóla Reykjavíkur. Hún hefur með hléum allar götur síðan sótt myndlistarnámskeið og þá aðallega í olíumálun t.d. hjá Þorra Hringssyni í Myndlistarskóla Reykjavíkur, Rúnu Gísladóttur sem rak myndlistarskólann Myndmál, Þuríði Sigurðardóttur, Einari Hákonarsyni og svo námskeið í blandaðri tækni hjá Hermanni Árnasyni auk fleiri námskeiða í akrýl málun og blandaðri tækni.
Í dag notar Kristín Berta. . . Lesa meira