Dulúð
Stærð: 100x70 cm.
Tækni: Olía og akrýl á striga.
"Innblástur verksins er sóttur í stórbrotin fjöll Íslands og þá einstöku tilfinningu sem vaknar þegar ekið er um íslenska sveit. Fjöllin hreinlega heltaka mann með tign sinni, fegurð og dulúð. Síbreytilegt samspil ljóss og skugga, hlýrra jarðlita og kaldra blátóna endurspegla andstæður íslenskra náttúru. Í verkinu leitast ég við að fanga þessa mögnuðu stemningu þar sem kraftur náttúrunnar og djúp kyrrð mætast."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Kamilla Svavarsdóttir
Kamilla Svavarsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1981. Hún lauk B.A. gráðu í Grafískri hönnun úr listaháskóla í Arizona USA. Einnig hefur hún lokið M.A. gráðu í listum frá virtum listaháskóla í Bretlandi. Kamilla hefur tekið fjölda námskeiða í olíumálun þá í Myndlistarskóla Reykjavíkur og lauk Olíumálun I-II-III og master class í Myndlistarskóla Kópavogs. Hún hefur einnig fengið kennslu og leiðsögn hjá fjölda listamanna þar á meðal: Bjarna Sigurbjörnssyni, Þuríði Sigurðardóttur, Soffíu Sæmundsdóttur, Söru Vilbergsdóttur og Halldóri Kristjánssyni. Kamilla starfar sem Grafískur hönnuður og kennir myndmennt.
Í verkum sínum vinnur Kamilla með flæði tilfinninganna sem birtast í formi náttúruaflanna, öldur,. . . Lesa meira
