DJÚPSÝN
Stærð: 80x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"DJÚPSÝN er ekki það sem augað sér, heldur það sem hjartað finnur. DJÚPSÝN býr í kyrrðinni, þar sem yfirborðið víkur og hið sanna fær að birtast. DJÚPSÝN er innri friður. Hún krefst hugrekkis til að horfa inn á við og mildi til að skilja það sem þar býr. Hún er ljós sem kviknar innan frá og lýsir leiðina áfram í gegnum myrkur. Í DJÚPSÝN býr ró og mjúk nærvera sem minnir á að allt hefur sinn tíma.
Verkið er innblásið af Vestfjörðum."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.