BERGÞÖGN
Stærð: 200x150 cm.
Tækni: Olía og akrýl á striga.
"Á Vestfjörðum rísa hamrar úr kyrrðinni og veturinn leggur mjúka hulu yfir hrjúft bergið. Ljós og skuggar leika um fornar klettabrúnir, mótaðar af veðrum og vindum um aldir. Í þögn bergsins býr óhagganlegur styrkur og kyrrð sem aðeins ósnortin náttúra kann að varðveita."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.