Æska

Birgir Rafn Friðriksson
Höfuðborgarsvæðið
1
330.000 kr

Stærð: 100x120 cm.

Tækni: Olía á striga.

"Það er ekki á hverjum degi sem ég geri málverk af hestum. Það er þó eitthvað að aukast og málaði ég þetta verk 2020. Eða réttara sagt lauk ég því þá, því þetta er eitt af þeim verkum sem ég var í langan tíma að þreifa mig áfram með. Hvernig og hvað? Og það getur alveg dregist að fá svör við þessháttar leiðbeinandi spurningum. Það eina sem maður getur gert er að leggja verkið til hliðar, grípa það svo aftur fram, vinna aðeins í því, þreifa sig áfram og bíða og sjá til. Svo kemur það allt í einu og maður veit nákvæmlega hvað maður ætlar sér eða hvað það er sem verkið þarf. Þessi gjöf að fá sýn, sjá greinilega og skilja er alltaf jafn merkilegt fyrirbæri. En hvað um það. Forsendurnar sem ég gaf mér var að ég vildi fanga unghross, leik eða kraft þess. Miðjusetja hrossið á striganum, vinna með hliðarvínkil og til að ögra mér, blanda  inn fjarvídd frá fremsta parti dýrsins til þess aftasta. Mig minnir að það hafi verið í tengslum við bæði ærsl og fjör ungdómsins, sem kemur og fer, en líka hugsanir mína til dætra minna sem uxu á hraða ljóssins, hve fljótt ungdómurinn hverfur inn í hið fullorðna. Á sama tíma fór verkið að snúast álíka mikið um áferðina eins og stóru formin og staðsetningu þeirra og perspektiveringuna. Því mikið rosalega var gaman að vinna búkinn, aftur og aftur, lag eftir lag og finna frelsið í hreyfanlegu landinu. Láta landið fljúga framhjá frosinni mynd af æsku sem líður hjá."

Upplag

Lesa meira.

Er verkið einstakt?

Öll listaverk á vefnum, nema annað sé tekið fram, eru frumverk og er því aðeins eitt eintak til.

Ljósmyndir og eftirprent eru dæmi af verkum sem yfirleitt eru gefin út í takmörkuðu upplagi og er magnið þá alltaf tekið fram.

14 daga skilaréttur

Lesa meira.

14 daga skilaréttur og full endurgreiðsla. Ef þú ert ekki ánægð/ur með verkið þitt, skilaðu því og við aðstoðum þig við að finna verk sem hentar betur.

Kaupferli og afhending

Lesa meira.

1. Staðsetning listaverks

Ef sækja á verk er gott að vita staðsetningu listamanns. Staðsetning listamanns kemur fram undir heiti verks hér fyrir ofan.

2. Setja í körfu

Fyrst þarf að bæta verki í körfu. Í körfunni er smellt á “ganga frá kaupum”. Áður en haldið er áfram í afhendingarmáta þarf að fylla inn upplýsingar um viðtakanda.

3. Afhendingarmáti

Í boði er að sækja verkið á vinnustofu listamanns eða að fá verkið sent heim. Ef valið er að sækja hefur listamaður samband og gefur upp nákvæma staðsetningu á vinnustofu.

4. Greiðsluleiðir

Greiðslu getur þú innt af hendi á ýmsa vegu: Kredit- og debetkort, millifærsla í banka, reiðufé eða Netgíró, Aur, Pei til þess að borga/dreifa/fresta greiðslum.

5. Afhending á verki

Þegar greiðsla hefur borist fær listamaður upplýsingar um kaupin. Listamaður hefur samband við kaupanda, við fyrsta tækifæri, og undirbýr verkið fyrir afhendingu.

6. Afhendingartími

Við leggjum metnað í afhendingartíma og því hafa listamenn oftar en ekki samband samdægurs til þess að afhenda verk.

Heimsent eða sótt

Lesa meira.

Við sendum eða þú sækir. Þú hefur val á milli þess að sækja verkið á vinnustofu listamanns eða fá verkið sent heim. Ef þú velur að sækja verkið er það listamaðurinn sjálfur sem afhendir verkið frá vinnustofu sinni.

Þegar greiðsla hefur borist fær listamaður upplýsingar um kaupin. Því næst undirbýr listamaður verkið fyrir afhendingu. 
Ef þú valdir að sækja verkið hefur listamaður samband við fyrsta tækifæri og þið finnið hentugan tíma.

Listamenn hafa oftar en ekki samband samdægurs til þess að afhenda verk. Í einstaka tilfellum getur það tekið lengri tíma.

Birgir Rafn Friðriksson

Birgir Rafn Friðriksson - B R F, fæddur í júlí 1973, er uppalinn Eyfirðingur, nánar tiltekið á Akureyri. Myndlistarmenntun hóf hann formlega úti í Suður Frakklandi 1995, þar sem hann segist hafa fengið ”bakteríuna”. Hann snéri því fljótt aftur heim til Akureyrar þar sem hann sótti mörg kvöldnámskeið Myndlistarskólans á Akureyri. Birgir Rafn skráði sig svo í dagnám við skólann og útskrifaðist frá málunardeildinni árið 2001 eftir fjögurra ára nám. Á meðan náminu stóð vann hann m.a. fyrir sér sem myndskreytir á auglýsingastofu og kenndi á myndlistanámskeiðum. Árið 1999 hlaut hann styrk til hálfs. . . Lesa meira

Ummæli viðskiptavina Apollo art

Ert þú næsti ánægði viðskiptavinur okkar?

Mjög þægileg og fljótleg leið til þess að eignast verk eftir íslenska listamenn. Ég hef nýtt mér heimamátun og líka skoðað verk á vinnustofu listamanns. Mæli með.
Rannveig Gunnarsdóttir
Allt gekk eins og í sögu. Eignaðist listaverk sem gleður mig. Ánægjulegt að styðja við íslenska list og listamenn.
Unnur Ólafsdóttir
Skemmtilegt að vera í sambandi við listamanninn. Fékk myndina senda um leið og var mjög ánægð.
Hrund Pétursdóttir
Góð þjónusta listamannsins, afgreiðslan gekk hratt og vel fyrir sig sem skiptir máli fyrir mig.
Erla Gunnars
Virkilega gaman að sjá vettvang fyrir íslenska listamenn á sama stað! Ég er virkilega sáttur með þá þjónustu sem ég fékk hjá Apollo art og Árna Thor, mæli hiklaust með!
Böðvar Böðvarsson
Frábær vettvangur. Keypti verk eftir Jóhannes P. og sótti það samdægurs. Allt upp á tíu hjá bæði Apollo og listamanni. Takk fyrir mig!
Kristján Finnbogason
Keypti yndislegt verk hérna eftir Höllu Harðardóttur og er í skýjunum! Fljótlegt, þægilegt og samskipti fagmannleg. Held áfram að versla við Apollo art, það er klárt 👌.
Bjarney Bjarnadóttir
Þægilegur vefur, upplifun ánægjuleg. Góð yfirsýn yfir verk, ágætis úrval og kaupin sem fram fóru gengu hratt og vel.
Ö.Á.
Traustið á milli viðskiptavinar og listamanns er frábært, ég fékk verkið í heimamátun og það var svo lítið mál. Sölu/skoðunar ferlið er auðvelt og fljótlegt.
Nafnlaust
Allt staðist, flott verk og ánægjuleg viðskipti. Hlakka til að gera aftur góð kaup af fallegum verkum á Apollo Art. Kíki reglulega og bíð eftir ákveðnum listamönnum með ný verk sem ég hef augastað á.
Nafnlaust
You have successfully subscribed!
This email has been registered