ÆGISFRIÐUR
Stærð: 150x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Ægisfriður er óður til þeirrar djúpu kyrrðar sem ríkir þar sem himinn og haf renna saman. Í faðmi víðáttunnar hvílir ljósið á haffletinum og minnir okkur á að jafnvel í myrkri og ólgusjó lífsins er frið að finna. Þar sem allt verður hljótt og hjartað finnur ró og sátt."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.