Á milli heima

Kristín Berta
Höfuðborgarsvæðið
Selt
50.000 kr

Stærð: 50x60 cm.

Tækni: Akrýl á striga.

Titillinn "Á milli heima" ber ósk, von og trú listamannsins um að halda megi tengingu við þá ástvini sem hafa farið á undan okkur og að við séum sálir sem fáum að fylgjast að þrátt fyrir að ferðalag ástvinar endi hér í þessum heimi. Að minning þeirra lifi í ástinni sem við berum til þeirra og þau til okkar. Tré eru gjarnan sögð tákn fyrir lífið sjálft og tengingu við alheiminn. Tré tákna visku, fjölskyldutengsl, vöxt, frjósemi og síðast en ekki síst styrk. Listamaðurinn sækir sjálfur næringu og innblástur til trjánna. Bleiku trjá málverkin voru máluð með bleikan október í huga. Þau voru máluð til að heiðra sterkar konur í lífi listamannsins sem hafa þurft að takast á við krabbamein á sínu ferðalagi um lífið. Liturinn er með vísun í lit bleiku slaufunnar sem hefur verið tileinkuð baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Þessi mynd eru máluð til heiðurs þessum konum, lífinu sjálfu, sorgum og sigrum. Litir tákna mismunandi hluti fyrir mismunandi fólki og í mismunandi menningarheimum. En í litafræði er bleiki liturinn oft sagður tengjast náttúrunni og því talinn hafa róandi áhrif. Andleg og trúarleg merking litsins er meðal annars alheimsást, hjarta opnun og skilyrðislaus ást og hann því sagður geta mýkt erfiðar tilfinningar. Guli liturinn er svo aftur sagður tákna hamingju og bjartsýni.

Upplag

Lesa meira.

Er verkið einstakt?

Öll listaverk á vefnum, nema annað sé tekið fram, eru frumverk og er því aðeins eitt eintak til.

Ljósmyndir og eftirprent eru dæmi af verkum sem yfirleitt eru gefin út í takmörkuðu upplagi og er magnið þá alltaf tekið fram.

14 daga skilaréttur

Lesa meira.

14 daga skilaréttur og full endurgreiðsla. Ef þú ert ekki ánægð/ur með verkið þitt, skilaðu því og við aðstoðum þig við að finna verk sem hentar betur.

Kaupferli og afhending

Lesa meira.

1. Staðsetning listaverks

Ef sækja á verk er gott að vita staðsetningu listamanns. Staðsetning listamanns kemur fram undir heiti verks hér fyrir ofan.

2. Setja í körfu

Fyrst þarf að bæta verki í körfu. Í körfunni er smellt á “ganga frá kaupum”. Áður en haldið er áfram í afhendingarmáta þarf að fylla inn upplýsingar um viðtakanda.

3. Afhendingarmáti

Í boði er að sækja verkið á vinnustofu listamanns eða að fá verkið sent heim. Ef valið er að sækja hefur listamaður samband og gefur upp nákvæma staðsetningu á vinnustofu.

4. Greiðsluleiðir

Greiðslu getur þú innt af hendi á ýmsa vegu: Kredit- og debetkort, millifærsla í banka, reiðufé eða Netgíró, Aur, Pei til þess að borga/dreifa/fresta greiðslum.

5. Afhending á verki

Þegar greiðsla hefur borist fær listamaður upplýsingar um kaupin. Listamaður hefur samband við kaupanda, við fyrsta tækifæri, og undirbýr verkið fyrir afhendingu.

6. Afhendingartími

Við leggjum metnað í afhendingartíma og því hafa listamenn oftar en ekki samband samdægurs til þess að afhenda verk.

Heimsent eða sótt

Lesa meira.

Við sendum eða þú sækir. Þú hefur val á milli þess að sækja verkið á vinnustofu listamanns eða fá verkið sent heim. Ef þú velur að sækja verkið er það listamaðurinn sjálfur sem afhendir verkið frá vinnustofu sinni.

Þegar greiðsla hefur borist fær listamaður upplýsingar um kaupin. Því næst undirbýr listamaður verkið fyrir afhendingu. 
Ef þú valdir að sækja verkið hefur listamaður samband við fyrsta tækifæri og þið finnið hentugan tíma.

Listamenn hafa oftar en ekki samband samdægurs til þess að afhenda verk. Í einstaka tilfellum getur það tekið lengri tíma.

Kristín Berta

Kristín Berta Guðnadóttir er fædd og uppalin í Reykjavík en býr í Hafnarfirði með fjölskyldu sinni. Áhugi hennar á myndlist kviknaði í barnæsku þegar hún sótti hin ýmsu námskeið hjá Myndlistaskóla Reykjavíkur. Hún hefur með hléum allar götur síðan sótt myndlistarnámskeið og þá aðallega í olíumálun t.d. hjá Þorra Hringssyni í Myndlistarskóla Reykjavíkur, Rúnu Gísladóttur sem rak myndlistarskólann Myndmál, Þuríði Sigurðardóttur, Einari Hákonarsyni og svo námskeið í blandaðri tækni hjá Hermanni Árnasyni auk fleiri námskeiða í akrýl málun og blandaðri tækni.
 
Í dag notar Kristín Berta. . . Lesa meira

Ummæli viðskiptavina Apollo art

Ert þú næsti ánægði viðskiptavinur okkar?

Mjög þægileg og fljótleg leið til þess að eignast verk eftir íslenska listamenn. Ég hef nýtt mér heimamátun og líka skoðað verk á vinnustofu listamanns. Mæli með.
Rannveig Gunnarsdóttir
Allt gekk eins og í sögu. Eignaðist listaverk sem gleður mig. Ánægjulegt að styðja við íslenska list og listamenn.
Unnur Ólafsdóttir
Skemmtilegt að vera í sambandi við listamanninn. Fékk myndina senda um leið og var mjög ánægð.
Hrund Pétursdóttir
Góð þjónusta listamannsins, afgreiðslan gekk hratt og vel fyrir sig sem skiptir máli fyrir mig.
Erla Gunnars
Virkilega gaman að sjá vettvang fyrir íslenska listamenn á sama stað! Ég er virkilega sáttur með þá þjónustu sem ég fékk hjá Apollo art og Árna Thor, mæli hiklaust með!
Böðvar Böðvarsson
Frábær vettvangur. Keypti verk eftir Jóhannes P. og sótti það samdægurs. Allt upp á tíu hjá bæði Apollo og listamanni. Takk fyrir mig!
Kristján Finnbogason
Keypti yndislegt verk hérna eftir Höllu Harðardóttur og er í skýjunum! Fljótlegt, þægilegt og samskipti fagmannleg. Held áfram að versla við Apollo art, það er klárt 👌.
Bjarney Bjarnadóttir
Þægilegur vefur, upplifun ánægjuleg. Góð yfirsýn yfir verk, ágætis úrval og kaupin sem fram fóru gengu hratt og vel.
Ö.Á.
Traustið á milli viðskiptavinar og listamanns er frábært, ég fékk verkið í heimamátun og það var svo lítið mál. Sölu/skoðunar ferlið er auðvelt og fljótlegt.
Nafnlaust
Allt staðist, flott verk og ánægjuleg viðskipti. Hlakka til að gera aftur góð kaup af fallegum verkum á Apollo Art. Kíki reglulega og bíð eftir ákveðnum listamönnum með ný verk sem ég hef augastað á.
Nafnlaust
Við notum vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum
You have successfully subscribed!
This email has been registered