LJÓSBRIGÐI
Stærð: 120x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"LJÓSBRIGÐI bera með sér dýpri merkingu lífsins, þar sem tækifærin felast til að uppgötva birtu og von, jafnvel þegar skuggar umvefja tilveruna. Líkt og sólargeislar sem ljóma í gegnum skýjaþykkt, má finna gleði, von og fegurð sem yljar hjartanu. Í LJÓSBRIGÐUM speglast margbreytileiki lífsins með sínum óteljandi litbrigðum og tækifærum. Með því að fagna sérhverju augnabliki af ljósi og koma auga á það jákvæða má fyllast þakklæti og styrk til að halda áfram veginn."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.

Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.