ÓENDANLEIKI
Stærð: 120x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Óendanleikinn býr í fjarskanum sem kallar hljóðlega á hjartað. Þar sem himinn og jörð mætast vaknar tilfinning fyrir einhverju sem endar aldrei, einhverju sem orð fá ekki að fullu lýst. Hann er þögn sem á sér engan endi, ljós sem hverfur ekki og kyrrð sem hvetur sálina til að dreyma stærra."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.