HÖFGI
Stærð: 100x160 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Þegar HÖFGI sækir að, hvíldu um stund. Í HÖFGANUM er friður, ró og kyrrð. Hvíldin færir nýjan kraft og nýtt innsæi. Lífið er ferðalag þar sem hver áskorun er tækifæri. Haltu fast í drauma þína; styrkurinn býr í brjósti þér og þú ert fær um að feta enn lengra áfram veginn."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.

Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.