HAUSTBLÆR
Stærð: 80x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Fyrsti svali andardrátturinn að hausti við hafið er eins og ljúf kveðja frá náttúrunni, sem boðar nýtt upphaf. Allt er á síbreytilegri hreyfingu, bæði í náttúrunni og innra með okkur sjálfum. Þetta augnablik táknar umbreytingu, jafnvægi milli hreyfingar og kyrrðar, fortíðar og framtíðar."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.

Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.