Sigurtindar
Stærð: 80x80 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Verkið Sigurtindar vísar til þeirra augnablika þegar maður tekur stór skref í átt að draumum sínum. Þeir tákna ferðalagið sjálft, ákvarðanirnar sem krefjast kjarks og viljans til að halda áfram, jafnvel þegar leiðin er óljós eða krefjandi. Hver tindur stendur fyrir sigur yfir efasemdum og ótta, minnir á að raunverulegur sigur felst í vexti og þroska, ekki með því að sigra samkeppnina um lífsgæðin. Sigurtindar eru áminning um að hamingjan er ekki bundin við lokamarkið, heldur við það að ganga í átt að því lífi sem þú þráir. Sigur verður til þegar þú tekur þessi skref, velur þig og að fylgja þeim vegi sem gefur lífi þínu tilgang."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Snædís Högnadóttir
Snædís Högnadóttir eða SOGNA er fædd í Vestmannaeyjum en uppalin í Kópavogi. Hún kemur af listamannafjölskyldu og hefur listin alltaf verið í henni. Sem barn teiknaði hún mikið, málaði, skrifaði ljóð og sögur og hannaði föt. Þegar sköpunarhæfileikum er ekki sinnt mun þörfin alltaf brjótast fram á einhverjum tímapunkti í lífi listamannsins og hefur Snædís farið aftur í að rækta sköpunarhæfileikana.
Snædís sækir innblástur úr litum og fegurð náttúrunnar, úr fjöllunum, lífsreynslunni og tilfinningum. Náttúran er stórkostlega mögnuð og vill hún skapa verk sem hver og einn getur tengt við á sinn hátt. . . Lesa meira
