Um dimman dal
Stærð: 120x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Verkið Um dimman dal vísar til þeirra kafla í lífi okkar sem hafa reynst þyngri og dimmari en aðrir. Dalurinn táknar vegferðina og fjöllin minna okkur á að það eru alltaf bjartari tímar framundan. Með tímanum færumst við nær bjartari tímum og með hugrekki og trausti fyllumst við von á ný. Verkið minnir okkur ávallt á að vera þakklát fyrir vegferðina, þá reynslu og þann dýrmæta lærdóm sem við höfum öðlast á leiðinni og þær minningar sem lifa með okkur og geymum í hjartanu."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Snædís Högnadóttir
Snædís Högnadóttir eða SOGNA er fædd í Vestmannaeyjum en uppalin í Kópavogi. Hún kemur af listamannafjölskyldu og hefur listin alltaf verið í henni. Sem barn teiknaði hún mikið, málaði, skrifaði ljóð og sögur og hannaði föt. Þegar sköpunarhæfileikum er ekki sinnt mun þörfin alltaf brjótast fram á einhverjum tímapunkti í lífi listamannsins og hefur Snædís farið aftur í að rækta sköpunarhæfileikana.
Snædís sækir innblástur úr litum og fegurð náttúrunnar, úr fjöllunum, lífsreynslunni og tilfinningum. Náttúran er stórkostlega mögnuð og vill hún skapa verk sem hver og einn getur tengt við á sinn hátt. . . Lesa meira
