FJARSKI
Stærð: 100x160 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"FJARSKI er ekki vegalengd, heldur tilfinning. Hann býr í sjóndeildarhringnum, þar sem himinn og jörð mætast án þess að snertast nokkru sinni til fulls. Í FJARSKA býr hið ókomna, þögn, kyrrð og leyndardómur. Hann kallar fram trú, von og kærleika eins og fullvissu þess að eitthvað fagurt bíði handan þess sem augað nær."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.