Töfrar
Stærð: 40x40 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
Þegar listamaðurinn gengur um í náttúrunni hérlendis og erlendis sækir hún innblástur til trjánna, tekur fullt af myndum og notar sem efnivið í verkin. Henni finnst léttara að anda í kringum tré og að ganga um í náttúrinni innan um þau endurnýjar lífsorkuna. Enda má segja að tré séu sannkallaðir lífgjafar fyrir jörðina og þá sem á henni búa.
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Kristín Berta
Kristín Berta Guðnadóttir er fædd og uppalin í Reykjavík en býr í Hafnarfirði með fjölskyldu sinni. Áhugi hennar á myndlist kviknaði í barnæsku þegar hún sótti hin ýmsu námskeið hjá Myndlistaskóla Reykjavíkur. Hún hefur með hléum allar götur síðan sótt myndlistarnámskeið og þá aðallega í olíumálun t.d. hjá Þorra Hringssyni í Myndlistarskóla Reykjavíkur, Rúnu Gísladóttur sem rak myndlistarskólann Myndmál, Þuríði Sigurðardóttur, Einari Hákonarsyni og svo námskeið í blandaðri tækni hjá Hermanni Árnasyni auk fleiri námskeiða í akrýl málun og blandaðri tækni.
Í dag notar Kristín Berta. . . Lesa meira