
Jóna Ólafsdóttir
Jóna Ólafsdóttir
Jóna Guðrún er fædd 1955 í Reykjavík og ólst upp í Hlíðarhverfinu og Háaleitishverfi í Reykjavík. Eftir stúdentspróf frá MH stundaði hún nám í Myndlista-og handíðaskóla Íslands og lauk þar fornámi. Undanfarin ár hefur hún einnig sótt námskeið í olíumálun hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík og Myndlistarskóla Kópavogs m.a undir leiðsögn Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar, Einars Garibaldi, Söru Vilbergsdóttur og Stephen Lárus Stephen. Einnig hefur hún sótt námskeið hjá Bjarna Sigurbjörnssyni.
Jóna Guðrún málar aðallega með olíu. Myndefnið er margvíslegt en myndirnar eru flestar óhlutbundnar og þar leyfir Jóna litum og formum að bráðna saman. . . Lesa meira
Kyrrðin
Stærð: 35x90 cm.
Tækni: Olía á striga.
Nafnið vísar til kyrrðar að haustlagi við Veiðivötn.
70.000 kr