Jóhanna Heiðdal (Önnönna)
Jóhanna Heiðdal (Önnönna)
Jóhanna Heiðdal Harðardóttir (Önnönna) er fædd og uppalin í Reykjavík en er búsett í Hveragerði þar sem hún er einnig með vinnustofu. Jóhanna er leikkona og ferðamálafræðingur að mennt en síðustu ár hefur hún að mestu unnið í ferðageiranum en þó alltaf með einhver listatengd verkefni samhliða hvort sem það er að leika, mála, taka myndir eða skrifa ljóð og handrit.
Jóhanna byrjaði að mála 2015 en síðan þá hefur hún haldið 3 einkasýningar, tekið þátt í tveim samsýningum og selt fjölda verka. Einnig hafa verkin hennar birst í nokkrum íslenskum þáttaseríum, áramótaskaupinu 2022 og nú síðast í Kennarastofunni þar. . . Lesa meira
Repair and start again
Stærð: 80x80 cm.
85x85 cm í viðarramma.
Tækni: Akrýl og paste á striga.
165.000 kr