Guðrún Pétursdóttir
Guðrún Pétursdóttir
Guðrún Pétursdóttir er fædd í Hafnarfirði 1961. Strax á unga aldri fór hún að dvelja langdvölum á uppeldisbæ föður síns á sunnanverðu Snæfellsnesi. Eftir að hafa stundað nám í 10 ár í Berlín, flutti hún aftur heim í sveitina og hefur alla tíð síðan verið búsett á sama bæ og í sama húsi og hún er alin upp í að miklu leyti. Eins og sést vel á verkum Guðrúnar dregur hún alla sína sköpun og innblástur frá náttúrunni, frá stöðum sem hún hefur þekkt og tekið inn frá fæðingu. Þannig þekkir hún hraunið, fjöllin, lyngið og móann eins og lófann. . . Lesa meira
Vorsnjór
Stærð: 50x100 cm. Tækni: Olía á striga. "Stundum snjóar óvænt á vorin. Náttúran er að byrja að taka við sér þegar allt í einu kyngir niður snjó. Daginn er farið að lengja en sólin er ennþá lágt á lofti svo...
140.000 kr
Haust í Hnappadal
Stærð: 70x50 cm.
Tækni: Olía á striga.
"Litadýrðin á fallegum haustdegi þar sem hraunið og mosinn veita skjól fyrir kaldri golunni."
130.000 kr
Gyllt jörð
Stærð: 60x60 cm.
Tækni: Olía á striga.
"Stundum á vorin er sólin svo lágt á lofti að allt virðist gullslegið og himininn fjólublár. Þá er gott að ganga veginn heim og vita að sumarið er handan við hornið."
90.000 kr
Á selaslóðum
Stærð: 40x80 cm. Tækni: Olía á striga. "Jökullinn minn hefur margar ásýndir og lítur aldrei alveg eins út eftir því frá hvaða sjónarhorni maður lítur hann. Hér liggja selir og njóta nærveru hans og ég sit á grjótinu og geri...
140.000 kr