Jökulró
Stærð: 120x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Jökulró er abstrakt verk sem er innblásið af þeirri kyrrlátu og rólegu tilfinningu sem yfir okkur fer þegar við horfum á jökulinn. Yfirnáttúruleg fegurð íssins fangar kyrrð og töfrandi ró náttúrunnar, á sama tíma og grófleikinn í yfirborðinu minnir á síbreytilega og flóknu lögun jökulsins sem teygir sig í allar áttir. Verkið endurspeglar þannig stöðuga umbreytingu, styrk og hið dýpra jafnvægi sem jöklar bera með sér."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Snædís Högnadóttir
Snædís Högnadóttir eða SOGNA er fædd í Vestmannaeyjum en uppalin í Kópavogi. Hún kemur af listamannafjölskyldu og hefur listin alltaf verið í henni. Sem barn teiknaði hún mikið, málaði, skrifaði ljóð og sögur og hannaði föt. Þegar sköpunarhæfileikum er ekki sinnt mun þörfin alltaf brjótast fram á einhverjum tímapunkti í lífi listamannsins og hefur Snædís farið aftur í að rækta sköpunarhæfileikana.
Snædís sækir innblástur úr litum og fegurð náttúrunnar, úr fjöllunum, lífsreynslunni og tilfinningum. Náttúran er stórkostlega mögnuð og vill hún skapa verk sem hver og einn getur tengt við á sinn hátt. . . Lesa meira
