ICEAIR
ICEAIR
35.000 kr

Athygli skotið á frest

Birgir Rafn Friðriksson
Höfuðborgarsvæðið
1
650.000 kr

Stærð: 120x120 cm.

Tækni: Olía á striga.

Málað 2022. 

Verkið Athygli skotið á frest / Attention posponed kemur úr sýningarröð á Garðatorgi í Garðabæ veturinn 2021-22. Sýningarröðin var sumsé 5 mánaðar langar sýningar eða þættir eins og Birgir Rafn kallaði þær, þar sem hver þáttur tók við af öðrum frá nóvember byrjun og alveg fram til loka mars. Birgir Rafn sagði sýningaskipulagið vera hugsað eins og Netflix þátta seríu og hver þáttur kemur með eitthvað nýtt. Verkefnið nefndist Dúettar og urðu þeir 5 talsins: Um upphaf, Í mótun, Fundið stað, Af athygli og sá fimmti hét Hugleiðingar. Dúetta verkefnið gekk út á að láta tvö sjálfstæð verk, sem bæði snerta á sama viðfangsefni en með ólíkum hætti þó, sýna sig saman og ekkert annað að trufla. Birgir Rafn vildi búa til rými með tveimur verkum eins og gerist þegar tvær raddir syngja dúett; láta þær vera og verka saman. "Í dúett eru raddirnar bundnar saman, mynda takmarkandi rými fyrir jafnvægi og eru mælikvarði fyrir hvor aðra. En það myndi aldrei gerast nema einmitt vegna þess að þær eru tvær en ekki ein rödd", segir Birgir Rafn.

Athygli skotið á frest er eins og nafnið bendir til kynna það augnablik þegar eitthvert hik gerir vart við sig í upplifun manns. Hikið getur verið í búningi einhverrar skynsemisraddar sem reynir að fá botn í það sem er að gerast. Móta sér mynd af því. Flokka það, bera saman við fyrri reynslur, leggja mat á hversu mikil hætta sé á ferðum, hvort öllu þessu sé treystandi osfrv. Birgir Rafn segir: "Ég fann að það þurfti til eitthvert form inn í verkið sem tæki yfir og yrði miðja verksins. Sílúettur hlutanna dreyfast um allt verkið og án þessa stóra forms í miðjunni væri athygli áhorfandans valsandi um allt verkið endalaust. En ég vili ná mynd af augnabliki þar sem eitthvað óöryggi eða þörf fyrir að flokka eða skilja - og skilja að - kæmi fram. Litirnir eru þess vegna hógværir, litapalettan ekki of öskrandi. Og þá varð til þetta blá leita form sem kom svo að segja af sjálfu sér. Og það meikaði fullkominn sens. Ég ímynda mér það þegar athyglin á einhverju minnkar, þegar athyglin dregst saman, þá er einhver mekanismi í manni sem fær rúm til að gera sitt og draga sinn staf á hið upplifaða. Og fyrr en varir er allt einhvern veginn niður raðað fyrir manni, sorterað í hólf og jafnvel elegant orða miðar komnir hvert fyrir sig. Og þá get ég talað um upplifunina".

Upplag

Lesa meira.

Er verkið einstakt?

Öll listaverk á vefnum, nema annað sé tekið fram, eru frumverk og er því aðeins eitt eintak til.

Ljósmyndir og eftirprent eru dæmi af verkum sem yfirleitt eru gefin út í takmörkuðu upplagi og er magnið þá alltaf tekið fram.

14 daga skilaréttur

Lesa meira.

14 daga skilaréttur og full endurgreiðsla. Ef þú ert ekki ánægð/ur með verkið þitt, skilaðu því og við aðstoðum þig við að finna verk sem hentar betur.

Kaupferli og afhending

Lesa meira.

1. Staðsetning listaverks

Ef sækja á verk er gott að vita staðsetningu listamanns. Staðsetning listamanns kemur fram undir heiti verks hér fyrir ofan.

2. Setja í körfu

Fyrst þarf að bæta verki í körfu. Í körfunni er smellt á “ganga frá kaupum”. Áður en haldið er áfram í afhendingarmáta þarf að fylla inn upplýsingar um viðtakanda.

3. Afhendingarmáti

Í boði er að sækja verkið á vinnustofu listamanns eða að fá verkið sent heim. Ef valið er að sækja hefur listamaður samband og gefur upp nákvæma staðsetningu á vinnustofu.

4. Greiðsluleiðir

Greiðslu getur þú innt af hendi á ýmsa vegu: Kredit- og debetkort, millifærsla í banka, reiðufé eða Netgíró, Aur, Pei til þess að borga/dreifa/fresta greiðslum.

5. Afhending á verki

Þegar greiðsla hefur borist fær listamaður upplýsingar um kaupin. Listamaður hefur samband við kaupanda, við fyrsta tækifæri, og undirbýr verkið fyrir afhendingu.

6. Afhendingartími

Við leggjum metnað í afhendingartíma og því hafa listamenn oftar en ekki samband samdægurs til þess að afhenda verk.

Heimsent eða sótt

Lesa meira.

Við sendum eða þú sækir. Þú hefur val á milli þess að sækja verkið á vinnustofu listamanns eða fá verkið sent heim. Ef þú velur að sækja verkið er það listamaðurinn sjálfur sem afhendir verkið frá vinnustofu sinni.

Þegar greiðsla hefur borist fær listamaður upplýsingar um kaupin. Því næst undirbýr listamaður verkið fyrir afhendingu. 
Ef þú valdir að sækja verkið hefur listamaður samband við fyrsta tækifæri og þið finnið hentugan tíma.

Listamenn hafa oftar en ekki samband samdægurs til þess að afhenda verk. Í einstaka tilfellum getur það tekið lengri tíma.

Birgir Rafn Friðriksson

Birgir Rafn Friðriksson - B R F, fæddur í júlí 1973, er uppalinn Eyfirðingur, nánar tiltekið á Akureyri. Myndlistarmenntun hóf hann formlega úti í Suður Frakklandi 1995, þar sem hann segist hafa fengið ”bakteríuna”. Hann snéri því fljótt aftur heim til Akureyrar þar sem hann sótti mörg kvöldnámskeið Myndlistarskólans á Akureyri. Birgir Rafn skráði sig svo í dagnám við skólann og útskrifaðist frá málunardeildinni árið 2001 eftir fjögurra ára nám. Á meðan náminu stóð vann hann m.a. fyrir sér sem myndskreytir á auglýsingastofu og kenndi á myndlistanámskeiðum. Árið 1999 hlaut hann styrk til hálfs. . . Lesa meira

Ummæli viðskiptavina Apollo art

Ert þú næsti ánægði viðskiptavinur okkar?

Mjög þægileg og fljótleg leið til þess að eignast verk eftir íslenska listamenn. Ég hef nýtt mér heimamátun og líka skoðað verk á vinnustofu listamanns. Mæli með.
Rannveig Gunnarsdóttir
Allt gekk eins og í sögu. Eignaðist listaverk sem gleður mig. Ánægjulegt að styðja við íslenska list og listamenn.
Unnur Ólafsdóttir
Skemmtilegt að vera í sambandi við listamanninn. Fékk myndina senda um leið og var mjög ánægð.
Hrund Pétursdóttir
Góð þjónusta listamannsins, afgreiðslan gekk hratt og vel fyrir sig sem skiptir máli fyrir mig.
Erla Gunnars
Virkilega gaman að sjá vettvang fyrir íslenska listamenn á sama stað! Ég er virkilega sáttur með þá þjónustu sem ég fékk hjá Apollo art og Árna Thor, mæli hiklaust með!
Böðvar Böðvarsson
Frábær vettvangur. Keypti verk eftir Jóhannes P. og sótti það samdægurs. Allt upp á tíu hjá bæði Apollo og listamanni. Takk fyrir mig!
Kristján Finnbogason
Keypti yndislegt verk hérna eftir Höllu Harðardóttur og er í skýjunum! Fljótlegt, þægilegt og samskipti fagmannleg. Held áfram að versla við Apollo art, það er klárt 👌.
Bjarney Bjarnadóttir
Þægilegur vefur, upplifun ánægjuleg. Góð yfirsýn yfir verk, ágætis úrval og kaupin sem fram fóru gengu hratt og vel.
Ö.Á.
Traustið á milli viðskiptavinar og listamanns er frábært, ég fékk verkið í heimamátun og það var svo lítið mál. Sölu/skoðunar ferlið er auðvelt og fljótlegt.
Nafnlaust
Allt staðist, flott verk og ánægjuleg viðskipti. Hlakka til að gera aftur góð kaup af fallegum verkum á Apollo Art. Kíki reglulega og bíð eftir ákveðnum listamönnum með ný verk sem ég hef augastað á.
Nafnlaust
Við notum vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum
You have successfully subscribed!
This email has been registered