Stóri Leppur
Stærð: 41x31 cm.
53x43 cm í svörtum ramma.
Tækni: Jarðlitir á handgerðan pappír.
"Verk Kristveigar eru unnin með jarðlitum, eða náttúrulegum litarefnum, sem hún sótti til Kerlingarfjalla. Fjölbreytt landslagið varð uppspretta þessara verka. Litadýrð, straumur vatns og jökla, leysingar, urð og grjót eru fyrirmyndirnar, frá sjónarhorni fuglsins sem flýgur frjáls um hálendið yfir dölum, hæðum og hólum. Aðferðin sem er notuð við gerð verkanna er svokölluð „pulp painting” þar sem litaðar hörtrefjar eru látnar flæða saman í vatninu, lag fyrir lag. Verkin eru unnin í blautu ástandi, myndverkin eru því „máluð” með trefjunum áður en pappírinn þornar. Vatnið er mótandi kraftur í verkunum líkt og það er á hálendinu. Engar tvær arkir eru nákvæmlega eins."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Kristveig Halldórsdóttir
Kristveig Halldórsdóttir f. 1964, uppalinn í Reykjavík og býr þar. Hún lærði textílmyndlist í Myndlista- og handíðskóla Íslands, fór í framhaldsnám í Listiðnaðarháskólanum í Osló og lauk þaðan mastersnámi í textílmyndlist. Hún hefur haldið einskasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga innanlands og erlendis ásamt sýningarstjórn. Í mastersnáminu rannsakaði hún sérstaklega gerð handunnins pappírs úr mismunandi plöntutrefjum sem leggur mikilvægan hugmyndfræðilegan grunn að verkum hennar. Einnig hefur hún lokið viðbótarnámi í Hagnýtri menningarmiðlun og gerði heimildarmynd um handgerðan pappír.
Náttúruleg efni, náttúran sjálf veitir henni innblástur í verkum hennar. Handgerður pappír úr trefjum verður alltaf einstakur. Engar tvær arkir eru. . . Lesa meira
