Kristveig Halldórsdóttir f. 1964, uppalinn í Reykjavík og býr þar. Hún lærði textílmyndlist í Myndlista- og handíðskóla Íslands, fór í framhaldsnám í Listiðnaðarháskólanum í Osló og lauk þaðan mastersnámi í textílmyndlist. Hún hefur haldið einskasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga innanlands og erlendis ásamt sýningarstjórn. Í mastersnáminu rannsakaði hún sérstaklega gerð handunnins pappírs úr mismunandi plöntutrefjum sem leggur mikilvægan hugmyndfræðilegan grunn að verkum hennar. Einnig hefur hún lokið viðbótarnámi í Hagnýtri menningarmiðlun og gerði heimildarmynd um handgerðan pappír.
Náttúruleg efni, náttúran sjálf veitir henni innblástur í verkum hennar. Handgerður pappír úr trefjum verður alltaf einstakur. Engar tvær arkir eru nákvæmlega eins. Pappírinn er náttúrulegur og sjálfbær efniviður sem unnin er úr plöntutrefjum, því einstakur og ekki margir sem sérhæfa sig á þessu sviði.
Kristveig er félagsmaður hjá Sambandi Íslenskra listamanna (SÍM), Textílfélaginu og IAMPA – alþjóðleg samtök pappírslistamanna og pappírgerðarfólks.
Verk í opinberri eigu
1999 Listasafn Reykjavíkur, Súlur I – VI
Listamannlaun
1999 Listamannalaun í 6 mánuði, Menntamálaráðuneytið, Reykjavík
1998 Listamannalaun fyrir unga listamenn í eitt ár, Norges Kunstnerråd, Oslo, Noregur
Einkasýningar
2022 Lífrænar Arkir, SÍM gallery, Reykjavík, Íslandi
2012 Nálapúðar og tvær arkir, Pappírslistasafnið í Tartu, Eistlandi
2008 Leyfi nr: 814, Start Art listamannahús, Reykjavík
2007 Kaldir straumar, opið hús, Herhúsið, gestavinnustofa listamanna á Siglufirði
2002 Rehum Papyrus, Listasafni ASÍ, Gryfjunni, Reykjavík
2001 Sjónrænn veruleiki, Fellingar, Kvennasögusafn Íslands, Þjóðarbókhlaðan
2000 Yfirborð, Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands, Reykjavík
1999 Eitt spor enn, Nýlistasafnið, Bjarti og Svarti salur, Reykjavík
Samsýningar frá 2010
2025 „Það húmar að”, samsýning Textílfélagsins, Handverk og hönnun, Eiðistorgi, Seljarnarnesi
2024 Torg Listamessa, SÍM, Korpúlfsstaðir, Reykjavík
2024 50 ára afmælissýning Textílfélagsins á Hlöðuloftinu, Korpúlfsstöðum, Reykjavík
2024 STRÁ og GREINAR sýning í Hönnunarsafni Íslands í samstarfi við Textílfélagið, Garðabæ
2024 ReBlooming, “ReBloom” IAPMA Paper Art BIENNALE , Hagen im Bremischen, Þýskalandi
2023 Legg í lófa, Hönnunarmars, samsýning Textílfélagsins,
2023 Sam(t)vinna, samsýning Textílfélagsins á Hlöðuloftinu Korpúlfsstöðum, Reykjavík
2022 Bráðum kemur betri tíð..., Handverk og Hönnun, Eiðstorgi, Seltjarnarnesi
2022 Postal Artist Books Project, Basel Paper Mill of the Swiss Museum of Paper, Swiss
2021 Textíl - Rit, Hönnunarmars, maí, samsýning Textílfélagsins, Hafnartorgi
2021 Postal Artist Books Project, Sao Palo, Brasilíu
2020 Nýju fötin keisarans, Hönnunarmars, samsýning Textílfélagsins, Kolatorg, Reykjavík
2019 Torg Listamessa, SÍM, Korpúlfsstaðir, Reykjavík
2019 LXV – 45 árs afmælissýning Textílfélagsins, Kirsuberjatréið, Reykjavík
2019 Líf eftir Líf, Hönnunarmars, samsýning Textílfélagsins, Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur
2018 Bókverk, Gullkistan, Laugarvatni
2015 Gullkistan 20 ára, Listasafn Árnesinga, Hveragerði
2014 Konur og sjórinn, (Wohnen am Meer), Strandhalle Ahrenshoop, Kunsterhaus Lukas, Þýskalandi
2012 Félagssýning Textílfélagsins, Korpúlfsstöðum, Reykjavík
2011 Félagssýning Textílfélagsins, Mjólkurbúðin, Ketilshúsið og Hofi, Akureyri
2010 13th INTERNATIONAL TRIENNIAL, Lodz, Póllandi (Fulltrúi Textílfélagsins)

Sýna minna