Endurfæðing 1
Stærð: 30x30 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Ný sería, Úmbra Illuminati, og enn eitt skrefið tekið áfram þar sem reynt er á takmörk ljóss og skugga innan tæknilegra marka flæðandi akrílmálningar. Börnin hennar Rósu fyrir valinu og fleiri í fæðingu, en þau munu láta á sér kræla fljótlega.
Tekið úr Latínu, en „Úmbra Illuminati“ má þýða sem „skugga hins upplýsta“ þar sem verkið er gagnvirkt og getur tekið breytingum eftir hljóðum og áreiti áhorfanda og/eða umhverfis samkvæmt stillingum og valkostum. Myndformið er grafískt og tiltölulega einfalt við fyrstu sýn, en smáatriðin koma fram þegar nær er litið og/eða þegar skyggja tekur. Fjarstýring fylgir með og er hægt að stilla LED lýsinguna eftir hentugheitum og velja mismunandi liti og/eða síbreytileg litróf, þ.m.t. gagnvirkt. Snúruna má fjarlægja og njóta verksins án lýsingar. Leiðbeiningar fylgja með."
Ath: Verkið er staðsett erlendis (Bandaríkjunum) og tekur 4-8 vikur að koma til landsins.
Pökkunar- og flutningskostnaður er innifalinn í verði.
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Diðrik Jón Kristófersson (Nekron Art)
Diðrik Jón Kristófersson er fæddur og uppalinn í Reykjavík og byrjaði snemma að teikna og mála, en hans helstu áhrif og áhrifavaldar komu – og koma enn – úr goðafræði, þjóðsögum og fornsögum (íslenskum og erlendum), dulspeki/heimspeki, tónlist og tengdri myndlist ásamt óhefðbundnum teiknimyndasögum og klassískri myndlist endurreisnar.
Að lokinni BA gráðu í myndlist við Willem de Kooning Akademíuna í Hollandi, ásamt Meistaragráðu í Kennslufræðum Sjónlista við LHÍ, hefur Diðrik starfað sem myndlistarmaður í næstum 30 ár og haldið einkasýningar á Íslandi og í Hollandi ásamt þátttöku í fjölda samsýninga. Hann er nú búsettur í Norður-Karólínufylki. . . Lesa meira
