Innra veður 1
Stærð: 40x40 cm.
44x44 cm í svörtum flotramma.
Tækni: Olía á striga.
"Í þessari seríu verka skoðar Erna innra landslag tilfinninga. Hvernig þær birtast, hreyfast og líða hjá. Tilfinningar eru orka sem flæða í gegn. Líkt og veðrið, er innra ástand ekki fast eða stöðugt heldur orka sem tekur breytingum. Upphafspunktur hvers verks eru þrýstilínur veðurkorta. Línur sem breytast, mýkjast, þéttast og opnast aftur.
Verkin eru unnin í flæði, án fyrirfram ákveðinnar niðurstöðu, því ferlið er á stöðugri hreyfingu, þar sem litir, form og áferð fá að túlka niðurstöðuna að lokum. Hvert verk og hver stroka er brot úr augnabliki. Innra veður sem fær að endurspeglast í verkinu og flæðir í þeirri orku sem er."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Erna Hafnes
Erna Hafnes er myndlistarmaður frá Akranesi sem vinnur fyrst og fremst með olíu á striga. Verk hennar sækja innblástur í náttúruna, lífræn form og síbreytilegt innra landslag tilfinninga. Í málverkunum mætast flæði, áferð, litir og form í leit að jafnvægi milli kyrrðar og hreyfingar.
Nýjasta serían, Innra veður, byggir á þeirri hugmynd að tilfinningar séu á stöðugri hreyfingu, líkt og veðrið sjálft. Upphafspunktur verkanna eru þrýstilínur veðurkorta sem umbreytast í lífræn form þar sem lög, litir og áferð þróast á eigin forsendum. Verkin eru unnin án fyrirfram ákveðinnar niðurstöðu og hvert þeirra verður þannig sjónræn skráning augnabliks – innra veðurs. . . Lesa meira
