Dorota Golińska - sjónlistakona sem skapar á mörkum raunsæis, impressjónisma og abstraksjónar. Í verkum sínum opnar hún rými fyrir ljós, tilfinningar og andlega dýpt. Innblástur hennar sprettur úr náttúru, kvenleika og hverfulleika augnabliksins - því sem er viðkvæmt, tímabundið og samt fullt styrks.
Síðan 1998 hefur hún tekið þátt í fjölbreyttum listaverkefnum sem tengja saman myndlist, leiklist, kvikmyndir, tísku og skapandi fræðslu. Ferðalög um Evrópu, Ameríku og Asíu hafa mótað fagurfræðilega sýn hennar og næmni í lit, áferð og formi. Frá árinu 2020 hefur hún búið og skapað á Íslandi, þar sem hún þróar sjálfstæða leið og vinnur með olíuliti. . . Lesa meira
Dorota Golińska - sjónlistakona sem skapar á mörkum raunsæis, impressjónisma og abstraksjónar. Í verkum sínum opnar hún rými fyrir ljós, tilfinningar og andlega dýpt. Innblástur hennar sprettur úr náttúru, kvenleika og hverfulleika augnabliksins - því sem er viðkvæmt, tímabundið og samt fullt styrks.
Síðan 1998 hefur hún tekið þátt í fjölbreyttum listaverkefnum sem tengja saman myndlist, leiklist, kvikmyndir, tísku og skapandi fræðslu. Ferðalög um Evrópu, Ameríku og Asíu hafa mótað fagurfræðilega sýn hennar og næmni í lit, áferð og formi. Frá árinu 2020 hefur hún búið og skapað á Íslandi, þar sem hún þróar sjálfstæða leið og vinnur með olíuliti og blandaða tækni. Ljós, áferð og táknræn spenna eru leiðarljós í verkum hennar.
Árið 2022 hlaut hún bronsverðlaun Camelback Gallery í Scottsdale (Bandaríkjunum) fyrir verkið „Náttúra 13“ í keppninni Abstracts with Blue. Verk hennar eru að finna í einkasöfnum í Póllandi, á Íslandi, í Þýskalandi, Hollandi, Úkraínu, Bandaríkjunum og Malasíu. Hún hefur sýnt verk sín m.a. á Reykjavik Marina – Berjaya Hotels, Núllið Gallery í Reykjavík, Collect Art Gallery í Kuala Lumpur, Camelback Gallery í Scottsdale og á Polish Culture Festival í Keflavík. Um verk hennar hefur m.a. verið fjallað í íslenska tímaritinu „Hús og Híbýli“ (2025) og í útvarpsþættinum „Wyspa“ – RÚV.is (2024).

Sýna minna