Valkyrja
Höfuðborgarsvæðið
100.000 kr
Stærð: 60x50 cm.
Tækni: Olía á striga.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.

Aksel Berglund
Aksel Berglund er fæddur og uppalinn í Reykjavík og er hálfur Svíi og hálfur Íslendingur. Hann hefur teiknað frá því að hann man eftir sér og seinna meir fór hann að vinna við að gera húðflúr og hefur gert það síðan 2012. Seinna byrjaði Aksel að mála og hefur verið önnum kafinn við það síðan.
Innblásturinn kemur aðallega frá graffiti senunni og götulist en einnig frá klassískum málurum gegnum tíðina, þá helst John Singer Sargent, Caravaggio, Dali, Manet og Diego Velazquez.
Aksel hefur tekið þátt í samsýningum og haldið eina einkasýningu.
Mjög þægileg og fljótleg leið til þess að eignast verk eftir íslenska listamenn. Ég hef nýtt mér heimamátun og líka skoðað verk á vinnustofu listamanns. Mæli með.
Rannveig Gunnarsdóttir
"Allt gekk eins og í sögu. Eignaðist listaverk sem gleður mig. Ánægjulegt að styðja við íslenska list og listamenn."
Unnur Ólafsdóttir
"Skemmtilegt að vera í sambandi við listamanninn. Fékk myndina senda um leið og var mjög ánægð."
Hrund Pétursdóttir
"Góð þjónusta listamannsins, afgreiðslan gekk hratt og vel fyrir sig sem skiptir máli fyrir mig."
Erla Gunnars
"Virkilega gaman að sjá vettvang fyrir íslenska listamenn á sama stað! Ég er virkilega sáttur með þá þjónustu sem ég fékk hjá Apollo art og Árna Thor, mæli hiklaust með!"
Böðvar Böðvarsson
"Frábær vettvangur. Keypti verk eftir Jóhannes P. og sótti það samdægurs. Allt upp á tíu hjá bæði Apollo og listamanni. Takk fyrir mig!"
Kristján Finnbogason
"Keypti yndislegt verk hérna eftir Höllu Harðardóttur og er í skýjunum! Fljótlegt, þægilegt og samskipti fagmannleg. Held áfram að versla við Apollo art, það er klárt 👌."
Bjarney Bjarnadóttir
"Þægilegur vefur, upplifun ánægjuleg.
Góð yfirsýn yfir verk, ágætis úrval og kaupin sem fram fóru gengu hratt og vel."
Ö.Á.
"Traustið á milli viðskiptavinar og listamanns er frábært, ég fékk verkið í heimamátun og það var svo lítið mál. Sölu/skoðunar ferlið er auðvelt og fljótlegt."
Nafnlaust
"Allt staðist, flott verk og ánægjuleg viðskipti. Hlakka til að gera aftur góð kaup af fallegum verkum á Apollo Art. Kíki reglulega og bíð eftir ákveðnum listamönnum með ný verk sem ég hef augastað á."