Urriðafoss í vorböndum
Stærð: 42x59,4 cm.
50x70 cm í hvítum ramma og kartoni.
Tækni: Vatnslitir og kol á pappír.
Verkið er málað um Páska við Urriðafoss. Ís og flúðir leika saman í sofnu landslaginu.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli
Staðsetning listaverks
1. Ef sækja á verk er gott að vita staðsetningu listamanns. Staðsetning listamanns kemur fram undir heiti verks hér fyrir ofan.
2. Setja í körfu
Fyrst þarf að bæta verki í körfu. Í körfunni þarf að haka í og samþykkja skilmála áður en gengið er frá kaupum. Áður en haldið er áfram í afhendingarmáta þarf að fylla inn upplýsingar um viðtakanda.
3. Afhendingarmáti
Í boði er að sækja verkið á vinnustofu listamanns eða að fá verkið sent heim. Ef valið er að sækja hefur listamaður samband og gefur upp nákvæma staðsetningu á vinnustofu.
4. Greiðsluleiðir
Greiðslu getur þú innt af hendi á ýmsa vegu: Kredit- og debetkort, millifærsla í banka, reiðufé eða Netgíró, Aur, Pei til þess að borga/dreifa/fresta greiðslum.
5. Afhending á verki
Þegar greiðsla hefur borist fær listamaður upplýsingar um kaupin. Listamaður hefur samband við kaupanda, við fyrsta tækifæri, og undirbýr verkið fyrir afhendingu.
6. Afhendingartími
Við leggjum metnað í afhendingartíma og því hafa listamenn oftar en ekki samband samdægurs til þess að afhenda verk.
Sjá skilmála fyrir ýtarlegri upplýsingar.

Sólveig Dagmar Þórisdóttir
Sólveig Dagmar Þórisdóttir er fædd í Reykjavík þann 28. september 1960. Hún býr að Keilugranda 2 í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem hún er með vinnuaðstöðu og tekur alltaf vel á móti kaupendum málverka sinna.
Sólveig hefur verið starfandi listamaður að Korpúlfsstöðum í Reykjavík frá árinu 2007 til 2020. Hún á langan starfsferil að baki sem myndlistarmaður, grafískur hönnuður og hagnýtur menningarmiðlari. Einnig hefur hún starfað við ökuleiðsögn ferðamanna í yfir tvo áratugi fyrir stærstu ferðaþjónustufyrirtækjum Íslands. Hún er jafnframt eigandi Create Iceland – Travel ehf.
Sólveig tengir listsköpun sína við sköpunarkraft í ró og flæði í náttúrunni. . . Lesa meira