Heimkoma
Stærð: 70x90 cm.
74x94 cm í svörtum flotramma.
Tækni: Akrýl á striga.
Verkið var unnið þannig að málningu var ýmist helt á strigann eða máluð á með ýmsum verkfærum. svo sem penslum, tuskum, spöðum, fingrum og spýtum, bæði til að þekja og skrapa upp úr myndinni þannig að undirliggjandi litalög komi fram. Síðan var teiknað í verkið með kolum og ýmsum litum.
Náttúran er undirliggjandi og vísar í lífið. Hægt er að sjá m.a. báta, fugla og heimili í verkinu.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli
Staðsetning listaverks
1. Ef sækja á verk er gott að vita staðsetningu listamanns. Staðsetning listamanns kemur fram undir heiti verks hér fyrir ofan.
2. Setja í körfu
Fyrst þarf að bæta verki í körfu. Í körfunni þarf að haka í og samþykkja skilmála áður en gengið er frá kaupum. Áður en haldið er áfram í afhendingarmáta þarf að fylla inn upplýsingar um viðtakanda.
3. Afhendingarmáti
Í boði er að sækja verkið á vinnustofu listamanns eða að fá verkið sent heim. Ef valið er að sækja hefur listamaður samband og gefur upp nákvæma staðsetningu á vinnustofu.
4. Greiðsluleiðir
Greiðslu getur þú innt af hendi á ýmsa vegu: Kredit- og debetkort, millifærsla í banka, reiðufé eða Netgíró, Aur, Pei til þess að borga/dreifa/fresta greiðslum.
5. Afhending á verki
Þegar greiðsla hefur borist fær listamaður upplýsingar um kaupin. Listamaður hefur samband við kaupanda, við fyrsta tækifæri, og undirbýr verkið fyrir afhendingu.
6. Afhendingartími
Við leggjum metnað í afhendingartíma og því hafa listamenn oftar en ekki samband samdægurs til þess að afhenda verk.
Sjá skilmála fyrir ýtarlegri upplýsingar.

Helga Sigurðardóttir
Helga Sigurðardóttir er fædd í Hafnarfirði en ólst upp í Kópavogi frá barnsaldri. Bakgrunnur Helgu sem listamaður liggur í fjölda námskeiða í Myndlistarskóla Kópavogs. Árið 2015 útskrifaðist hún með BA gráðu í listfræði við HÍ og árið 1986 útskrifaðist hún sem sjúkraþjálfari við HÍ. Helga rekur nú Art Gallery 101 ásamt 14 öðrum listakonum. Í 60. tölublaði International Artist Magazine var birt 10 bls. grein um listsköpun hennar.
Náttúran liggur oft að baki verkanna, sem eru þó að mestu tjáð í abstrakt formum. Náttúra Íslands og afskekkt eyja Bahamas koma sterkt inn sem áhrifavaldar. . . Lesa meira