Andrea Ágústa Aðalsteinsdóttir (f.1991) útskrifaðist af myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2015. Hún hefur starfað í Reykjavík, Leipzig og Berlín. Andrea hefur tekið þátt í margskonar samstarfsverkefnum og hefur unnið í nánum tengslum við ýmsa listhópa. Helstu sýningar og verkefni sem hún hefur komið að eru meðal annars kollektífið Computer Spirit (Andrea, Freyja Eilíf, Heiðrún G. Viktorsdóttir og Sigthora Odins) Listrænar rannsóknir þeirra voru kynntar sem fasafléttu er leiða saman hugmyndir úr heimum myndlistar, frumefna, fjölvíddar og fjölkynngis. Einnig vann hún í nánu samstarfi við Anton Loga Ólafsson, í gjörningatvíeykinu Óþokkarnir, starf þeirra samanstóð af fimm sýningum og tveggja mánaða vinnustofudvöl. . . Lesa meira
Andrea Ágústa Aðalsteinsdóttir (f.1991) útskrifaðist af myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2015. Hún hefur starfað í Reykjavík, Leipzig og Berlín. Andrea hefur tekið þátt í margskonar samstarfsverkefnum og hefur unnið í nánum tengslum við ýmsa listhópa. Helstu sýningar og verkefni sem hún hefur komið að eru meðal annars kollektífið Computer Spirit (Andrea, Freyja Eilíf, Heiðrún G. Viktorsdóttir og Sigthora Odins) Listrænar rannsóknir þeirra voru kynntar sem fasafléttu er leiða saman hugmyndir úr heimum myndlistar, frumefna, fjölvíddar og fjölkynngis. Einnig vann hún í nánu samstarfi við Anton Loga Ólafsson, í gjörningatvíeykinu Óþokkarnir, starf þeirra samanstóð af fimm sýningum og tveggja mánaða vinnustofudvöl á árunum 2015-2017. Þeirra vinna fjallaði að mestu um pólitík, andóf og samfélagið. Einnig vann hún náið við listamannarekna galleríið Ekkisens á sínum tíma, ásamt því að ritstýra tímaritinu Listvísi – Málgagn um myndlist.
Hennar sjálfstæðu listrannsóknir tengjast einskonar verufræðilegum leiðangri, þar sem vangaveltum um skynjun og eðli efnisins er skoðað. Andrea er hluti af félagi Sambandi Íslenskra Myndlistarmanna og hefur nú um þessar mundir vinnustofu á þeirra vegum á Seljavegi í Reykjavík. Einnig er hún félagsmaður í Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík og Félagi Nýlistasafnsins. Samhliða sinni listsköpun vinnur hún einnig sem stundakennari í Myndlistarskólanum í Reykjavík og við leiðsögn á stökum smiðjum víða í Reykjavík.
Einkasýningar
2022 Villigarðurinn, Lóla Flórens, Reykjavík
2022 Eldur og Flóra, Mama, Reykjavík
Helstu samsýningar
2021 Samfélag skynjandi vera, Hafnarborg, Hafnarfjörður
2018 Rúmelsi#3: Streymi, Ekkisens í Nýlistarsafninu, Reykjavík
2018 Computer Spirit, Gallery Port, Reykjavík
2018 Computer Spirit, Kurant, Tromso
2017 Hundur borðar hund, Ekkisens, Reykjavík
2017 Ofar mannlegum hvötum #12, Mengi, Reykjavík
2016 Hávaði III, Ekkisens, Reykjavík
2016 Myrkramessa, off-venue á A! gjörningahátið, Akureyri
2016 Straumur í polli, Gallerii Metropol, Tallinn
2016 Plan B listahátið, Borgarnes
Styrkir
2017 Vinnustofudvöl í Kunstnerhuset i Lofoten, Svolvær, NNKS
2017 Muggur ferðastyrkur, fyrir Hof hundsins, SÍM
2016 Muggur ferðastyrkur, fyrir Straumur í polli, SÍM
2016 Ferðastyrkur fyrir Straumur í polli, KÍM
2016 Verkefnastyrkur fyrir Listvísi – Málgagn um myndlist, Myndlistarsjóður
Sýna minna