{"title":"Bryndís Björgvinsdóttir","description":"\u003cp\u003eBryndís er fædd í Reykjavík. Hún ólst upp í fjölskylduhúsi, í stórum hópi systkina og frændsystkina, og fann mjög snemma að hún gat búið sér til öruggt rými í gegnum teikningu og sköpun uppi á lofti hjá ömmu sinni. Myndlistin varð hennar tjáningarform og flóttaleið, heimur sem hún gat kallað sinn. \u003cbr\u003eHugurinn stefndi snemma í Myndlistaskólann. Hún útskrifaðist úr textíldeild MHÍ 1982 og kennaradeild MHÍ 1985, og vann sem myndlistakennari í mörg ár. Forvitni og löngun til að læra meira hefur alltaf drifið hana áfram og í dag hefur hún tíma og tækifæri til að vinna úr öllu því safnast hefur saman í gegnum árin.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTeikning, mannslíkaminn, litir og áferð spila stóran þátt í verkum Bryndísar. Hún hefur alltaf verið náttúrubarn og næm fyrir umhverfi sínu, og leitar oft út í náttúruna til að fá hugmyndir og andlega orku til að skapa. Myndlistin og málverkin eru fyrir hana leið til heilunar og dýpri sjálfsskoðunar. \u003cbr\u003eHún reynir að koma til skila því sem hún fær til sín í andlegri vinnu. Birtan, upplifunin, veðrið, göngutúrar og náttúran, en einnig innri friður, ró, einvera, kyrrð og kærleikur eru stórir þættir sem hafa áhrif á sköpun hennar. \u003cbr\u003eÁ síðustu árum hefur hún verið að vinna með manninn, sálufélagann, innri manninn, hluta af líkama eða andlit. Þetta kemur til hennar í hugleiðslu eða draumum, einhvers konar tenging við fólk og árur sem verður að mynd. Þetta er ekki portrett af tiltekinni manneskju heldur sálufélagi sem þú finnur fyrir en sérð ekki,  andlit sem birtast og hverfa. Þar getur hún sameinað teikningu og málun á einlægan hátt. Hreyfing hefur einnig áhrif á verkferli hennar, göngutúrar í náttúrunni, þar sem hún upplifir líkamann, öndunina og þreytuna. Sundferðir og vatn hafa einnig sín áhrif á hvernig hún nálgast viðfangsefnið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSamhliða kennslunni vann Bryndís í vatnslitum, þar sem hún gat sameinað teikninguna og litablöndunina, unnið hratt en um leið náð nákvæmni í smáatriðum. Textíll hefur alltaf heillað hana. Þar blandar hún saman málaratækni og textíl, leikur sér með liti og áferð, hraðann við að mála annars vegar og rólegan tíma útsaumsins hins vegar. \u003cbr\u003eÁ síðustu árum hefur hún farið meira inn í málverkið. Í akrýl getur hún unnið hratt, með áferð og lifandi litablöndun. Olíumálverkin kalla á aðra nálgun, litablöndun, andstæður, ljós og skugga, birtu og dýpt. Þessar tvær andstæður endurspegla eitthvað í hennar sköpunarferli: hraði og ófyrirsjánlegt annars vegar, yfirvegun og hugleiðsla hins vegar. Hún hefur ekki fest sig við einn stíl eða efni, þvert á móti er löngunin til að komast lengra, læra meira og brjóta upp vanann, það sem knýr hana áfram.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eBryndís hefur haldið 11 einkasýningar og tekið þátt í 16 samsýningum. Árið 2020 var henni boðið að sýna textílverk í Borås í Svíþjóð í afmælis sýningu Norræna textílfélagsins, og tók þátt í farandssýningu í Lettlandi. Hún hefur einnig tekið þátt í Design Week Reykjavík þrisvar sinnum og Art Mess í Danmörku.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eMenntun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThe Florence Academy of Art – Oil Painting, 2007–2008\u003cbr\u003eUCE Birmingham, England – MA Fashion Design, 1998–2001\u003cbr\u003eMHÍ Reykjavík – BA Art Teacher Training, 1982–1985\u003cbr\u003eMHÍ Reykjavík – BA Textile Studies, 1978–1982\u003cbr\u003eMyndlistaskóli Reykjavíkur – Módelteikning, 1977–1980\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv style=\"text-align: start;\"\u003e\u003cimg src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0298\/9821\/1388\/files\/IMG_2534_2_600x600.jpg?v=1775559461\" alt=\"Bryndís Björgvinsdóttir - Listamaður Apollo art\" style=\"float: none;\"\u003e\u003c\/div\u003e","products":[{"product_id":"eftirsja","title":"Eftirsjá","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærð:\u003c\/strong\u003e 75x50 cm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTækni:\u003c\/strong\u003e Akrýl á striga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\"Í mynda-séríunni um \"andlit\" er unnið með andlit af fólki sem ber þess merki í svip sínum að það er búin að lifa sínu lífi, þreyta, sorg, gleði og sátt, engin uppgerðar svipur, fólkið er bara það sjálft. Unnið uppúr skissum, útfærið þar sem liturinn skiptir máli, tilraunir með litablöndun og fá liti til að vinna saman.\"\u003c\/p\u003e","brand":"Bryndís Björgvinsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53383040696593,"sku":null,"price":90000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0298\/9821\/1388\/files\/eftirsja-apolloart-4381693.jpg?v=1775664677"},{"product_id":"kona-fra-isafirdi","title":"Kona frá Ísafirði","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærð:\u003c\/strong\u003e 75x50 cm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTækni:\u003c\/strong\u003e Akrýl á striga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\"Í mynda-séríunni um \"andlit\" er unnið með andlit af fólki sem ber þess merki í svip sínum að það er búin að lifa sínu lífi, þreyta, sorg, gleði og sátt, engin uppgerðar svipur, fólkið er bara það sjálft. Unnið uppúr skissum, útfærið þar sem liturinn skiptir máli, tilraunir með litablöndun og fá liti til að vinna saman.\"\u003c\/p\u003e","brand":"Bryndís Björgvinsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53383071432977,"sku":null,"price":90000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0298\/9821\/1388\/files\/kona-fra-isafirdi-apolloart-2972697.jpg?v=1775664677"},{"product_id":"graen-kona-med-rauda-hond","title":"Græn kona með rauða hönd","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærð:\u003c\/strong\u003e 100x75 cm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTækni:\u003c\/strong\u003e Akrýl á striga.\u003c\/p\u003e","brand":"Bryndís Björgvinsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53383078281489,"sku":null,"price":140000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0298\/9821\/1388\/files\/graen-kona-med-rauda-hoend-apolloart-3257305.jpg?v=1775664676"},{"product_id":"adeins-ad-ihuga","title":"Aðeins að íhuga","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærð:\u003c\/strong\u003e 100x100 cm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTækni:\u003c\/strong\u003e Akrýl á striga.\u003c\/p\u003e","brand":"Bryndís Björgvinsdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53383096500497,"sku":null,"price":200000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0298\/9821\/1388\/files\/adeins-ad-ihuga-apolloart-2617747.jpg?v=1775664677"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0298\/9821\/1388\/collections\/bryndis-bjoergvinsdottir-9523214.jpg?v=1775664552","url":"https:\/\/apolloart.is\/en\/collections\/bryndis-bjorgvinsdottir.oembed","provider":"Apolloart","version":"1.0","type":"link"}