
Karl Jóhann
Karl er fæddur í Reykjavík og starfar sem listmálari og myndlistakennari.
Eftir nám í MHÍ, störf við garðyrkju hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur en kenndi þá einnig á myndlistarnámskeiðum m.a. í Myndlistarskólanum í Reykjavík á kvöldin áður en hann sneri sér alveg að kennslu sem aðalstarfi meðfram myndlistinni.
Við garðyrkjuna kviknaði hjá honum meiri áhugi á naturalisma, var oft hugfanginn m.a. af hugmyndinni að gera portrett af trjám, en tréin í kirkjugarðinum voru oft fyrir honum ígildi þeirra sem þar hvíla.
Í myndlistinni fæst Karl mest við að mála með olíulitum, en einnig akrýllitum. Undanfarin ár hefur realismi í einhverri mynd verið í aðalhlutverki og hann hoppar á milli þess að mála uppstillingar, dýr og umhverfi, en þungamiðjan hjá honum hefur samt sem áður verið að mála fólk - bæði persónuleg portrett auk þess sem Karl málar eftir pöntunum.
Hann hefur einnig fengist nokkuð við myndskreytingar í barnabækur og tilfallandi teiknistörf. Auk þess að myndskreyta fyrir aðra hefur Karl skrifað og myndskreytt eigin barnabækur og fékk ein þeirra, Sófus og svínið Dimmalimm verðlaunin árið 2010
Það er áhugi á miðlinum sjálfum sem rekur hann áfram og aðrir málarar sem hann hrífst að og löngun til að endurspegla það sem þeir vekja hjá honum. Þau áhrif eru sterkust frá nokkrum af kanónum listasögunnar, ekki endilega samt þær stærstu, en mikið að 19. aldar málurum sem hann metur mest, þeir málarar sem unnu á mörkum naturalisma og impressionisma, t.d. rússneskir og skandinaviskir naturalistar.
Nám:
2006-2007: Listaháskóli Íslands, kennslufræðiréttindi
1997-1999: Nýi tónlistakólinn, söngnám, lauk 5. Stigi
1989-1993: Myndlista og Handíðaskóli Íslands, fornám og málaradeild
1985-1987: Myndlistaskólinn í Reykjavík, ýmis námskeið
1984-1988: FÁ, stúdent af uppeldisbraut
Einkasýningar:
- Við Hamarinn ´95
- Gallerí Greip ´96
- Sýning í ÁTVR, Kringlan ´97
- Gallerí Anddyri ´98
- Tólf Tónar ´98
- Sparisjóður Hafnarfjarðar ´99
- Ásmundarsalur ´99
- Hafnarborg, “Albúm” 2003
- Grensáskirkja 2005
- Galleri Nordlys DK 2005
- Gallerí Sævar Karl 2007
- Gallerí Hurðir 2009
- Kaffi Mílanó 2010
- Lindarskóli 2010
- Þjóðmenningarhúsið 2011
Samsýningar:
- "1 1 1 1 1 1 1" samsýning í Hlaðvarpanum ´93
- "P-sýningin" samsýning í kjallara Borgarkringlunnar ´93
- "Strákar á stöpli" samsýning í Gerðubergi ´94
- "Gullkistan" samsýning Laugarvatni ´95
- Samsýning vegna opnunar listaskólans við Hamarinn ´95
- "Takt´ana heim" samsýning við Hamarinn ´95
- Gallerí Greip samsýning vegna lokunar gallerísins ´96
- "Sjálfsímynd karla" samsýning á Mokka ´97
- Samsýning ÓLafsvík ´97
- "Ungir myndlistarmenn" samsýning í listaskálanum Hveragerði ´98
- "Stadt blumen" samsýning í kirkjugarði í Hannover, þýskalandi ´99
- Ómar Smári og karl Jóhann Samsýning á Mokka September 2001
- "Fólk, tré og ávextir" Gallerí Hlemmur 2003
- "Ferðafuða" Kjarvalstaðir 2003
- Reykjavíkurakademian 2004
- "Gullkistan" samsýning Laugarvatni 2005
- Sumarsýning í Þykkvabæ 2006
- Farandsýning í USA, “The New Reality” 2008-2011
- “Ljósmyndin, málverkið, portrettið, Listasafn Reykjanesbæjar 2008
- “Þetta vilja börnin sjá” myndskreytingar 2005 – 2011 með hléum
- Portrait Nu, Friðriksborgarkastali, Kaupmannahöfn 2018
- Allt sem sýnist – raunveruleiki á striga, Kjarvalsstaðir 2020