
Jóhanna V Þórhallsdóttir
Jóhanna er fædd 1957, í hrútsmerkinu. Alin upp í Háaleitishverfinu og fór í MH þar sem listalífið var fjölskrúðugt. Á þeim tíma söng hún í kór, stofnaði hljómsveit og lærði á flautu. Eftir stúdent hélt hún til Kaupmannahafnar og reyndi fyrir sér í leiklist og fór seinna til Englands í söngnám.
Eftir góða stund í tónlistinni hóf hún nám í myndlist, bæði í Kópavogi og Reykjavík.
Kennarar hennar voru Markus Lüpertz og Heribert Ottersbach.
Jóhanna heillaðist af expressjónisma og dregur hún innblástur bæði úr tónlistinni og landslagi sem og frá öllu fólkinu sem hún umgengst.
Jóhanna hefur haldið einkasýningar bæði hér á landi og í Þýskalandi, Obertsdor. Einnig hefur hún verið á samsýningum bæði í Kolbermoor og Bad Reichenhall.
Einkasýningar:
2020 Gallerí Göng, Háteigskirkja, Reykjavík
2019 Gallerí Göng, Háteigskirkja, Reykjavík
2019 Edinborgarhúsið, Ísafjörður
2018 Gallerí Göng, Háteigskirkja, Reykjavík
2018 Edinborgarhúsið, Ísafjörður
2017 Anarkía listasalur, Kópavogi
2016 Anarkía listasalur, Kópavogi
2015 Anarkía listasalur, Kópavogi
2014 Anarkía listasalur, Kópavogi