{"title":"Guðrún Pétursdóttir","description":"\u003cp\u003eGuðrún Pétursdóttir er fædd í Hafnarfirði 1961. Strax á unga aldri fór hún að dvelja langdvölum á uppeldisbæ föður síns á sunnanverðu Snæfellsnesi. Eftir að hafa stundað nám í 10 ár í Berlín, flutti hún aftur heim í sveitina og hefur alla tíð síðan verið búsett á sama bæ og í sama húsi og hún er alin upp í að miklu leyti. Eins og sést vel á verkum Guðrúnar dregur hún alla sína sköpun og innblástur frá náttúrunni, frá stöðum sem hún hefur þekkt og tekið inn frá fæðingu. Þannig þekkir hún hraunið, fjöllin, lyngið og móann eins og lófann á sér.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ Berlín lærði Guðrún félags- og kennslufræði og á því sviði er sköpunarþörfin nýtt til hönnunar námsefnis og kennsluaðferða auk þess sem Guðrún hefur skrifað nokkrar fræðibækur á sínu þekkingarsviði. Guðrún hefur stundað ljósmyndun frá unga aldri eða frá því hún eignaðist fyrst Canon myndavél á menntaskólaárunum. Myndavélina skildi hún sjaldan við sig og þó hún hafi ekki menntað sig á því sviði tók hún þátt í nokkrum ljósmyndasýningum í Berlín á námsárunum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGuðrún hefur ávallt stundað bæði handverk og listir af ýmsum toga. Myndlistin hefur ætíð verið fylgifiskur ljósmyndunarinnar þar sem hún fangar augnablikin í náttúrunni ýmist á ljósmynd eða á strigann. Myndefnið er sótt í hraunið og fjöllin allt um kring en á heimahögunum er aldrei skortur á myndefni. Vinnustofan er gamli bærinn undir fjallinu þar sem náttúran skartar litskrúðugum eldfjöllum, jökli og hrauni út um alla glugga. Guðrún hefur unnið bæði með akríl og olíu en undanfarin ár hefur hún svo til eingöngu unnið með olíuliti á striga og minni verk á pappír.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVerk eftir Guðrúnu hanga víða um heim. Má þar t.d. nefna Kanada, Bandaríkin, Bretland og Þýskaland en einnig hafa þau fengið ný heimili á Íslandi. Það sem er ef til vill áhugavert varðandi verkin er eins og Guðrún segir sjálf, „fæst ykkar sjáið verkin mín eins og ég sé þau en vonandi sjáið þið sömu undur náttúrunnar þar og ég“. Þar á hún við að vegna augngalla notar hún aðeins annað augað og upplifir þannig þrívídd, dýpt og rými öðruvísi en þeir sem horfa á myndirnar með báðum augum.\u003c\/p\u003e\n\u003cdiv style=\"text-align: left;\"\u003e\u003cimg src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0298\/9821\/1388\/files\/Gudrun_uti_1__edited_2_600x600.jpg?v=1788262200\" alt=\"Guðrún Pétursdóttir - Listamaður Apollo art\" style=\"float: none;\"\u003e\u003c\/div\u003e","products":[{"product_id":"a-selaslodum","title":"Á selaslóðum","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærð:\u003c\/strong\u003e 40x80 cm. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTækni:\u003c\/strong\u003e Olía á striga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\"Jökullinn minn hefur margar ásýndir og lítur aldrei alveg eins út eftir því frá hvaða sjónarhorni maður lítur hann. Hér liggja selir og njóta nærveru hans og ég sit á grjótinu og geri það sama.\"\u003c\/p\u003e","brand":"Guðrún Pétursdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54546771968273,"sku":null,"price":140000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0298\/9821\/1388\/files\/Aselastlodum-klippt.jpg?v=1788266111"},{"product_id":"gyllt-jord","title":"Gyllt jörð","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærð:\u003c\/strong\u003e 60x60 cm. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTækni:\u003c\/strong\u003e Olía á striga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\"Stundum á vorin er sólin svo lágt á lofti að allt virðist gullslegið og himininn fjólublár. Þá er gott að ganga veginn heim og vita að sumarið er handan við hornið.\"\u003c\/p\u003e","brand":"Guðrún Pétursdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54546982437137,"sku":null,"price":90000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0298\/9821\/1388\/files\/Gylltjordklippt.jpg?v=1788266134"},{"product_id":"haust-i-hnappadal","title":"Haust í Hnappadal","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærð:\u003c\/strong\u003e 70x50 cm. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTækni:\u003c\/strong\u003e Olía á striga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\"Litadýrðin á fallegum haustdegi þar sem hraunið og mosinn veita skjól fyrir kaldri golunni.\"\u003c\/p\u003e","brand":"Guðrún Pétursdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54547013992721,"sku":null,"price":130000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0298\/9821\/1388\/files\/HaustiHnappadaloklippt.jpg?v=1788266158"},{"product_id":"vorsnjor","title":"Vorsnjór","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærð:\u003c\/strong\u003e 50x100 cm. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eTækni:\u003c\/strong\u003e Olía á striga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\"Stundum snjóar óvænt á vorin. Náttúran er að byrja að taka við sér þegar allt í einu kyngir niður snjó. Daginn er farið að lengja en sólin er ennþá lágt á lofti svo skuggarnir eru langir. Hestarnir láta sér fátt um finnast en njóta hlýju sólargeislanna.\"\u003c\/p\u003e","brand":"Guðrún Pétursdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54547037094161,"sku":null,"price":140000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0298\/9821\/1388\/files\/Vorsnjorklippt.jpg?v=1788266184"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0298\/9821\/1388\/collections\/Gudrun_uti_1__edited_2.jpg?v=1788273249","url":"https:\/\/apolloart.is\/collections\/gudrun-petursdottir.oembed","provider":"Apolloart","version":"1.0","type":"link"}