
Gerður Erla (GetZen)
Gerður Erla (GetZen)
Gerður Erla Tómasdóttir er fædd 1988 og ólst upp í Reykjavík. Hún fór í listfræði í Háskóla Íslands en drögin að B.A. ritgerðin hennar "Anima Mundi" fjallaði um list sem frumlega skapandi hugsun og sem birtingarform þróunar mannshugans og andans. Ritgerðin endaði sem miðjuverk á sýningu í listasafninu Muuseum í Parnu, Eistlandi 2014.
Gerður hefur tekið þátt í þónokkrum samsýningum á Íslandi, m.a. á menningarnótt og í Kaaberhúsinu. Auk þess hefur hún haldið einkasýningar í Kofa Tómasar frænda, Kaffi Rót, Cafe Mezzo, Domus Medica og Gallerí 16.
Gerður hefur reynslu á og nýtur þess að vinna sérpantanir. Hún vinnur helst í akrýl en er einnig í olíu. Gerður sækir innblástur í daglegt líf en hefur einnig mikinn áhuga á sálfræði, heimspeki, gervigreind, tarot og dulspeki sem hún nýtir sér í sinni listsköpun.